Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn
„Ég er bjartsýnn á að flytja inn næsta vor,“ segir Bragi Þór Thoroddsen sveitarstjóri Fljótsdalshrepps en hann verður fyrsti íbúinn í Hamborg, nýjum byggðarkjarna í Fljótsdal. Sveitarfélagið er þar að byggja fyrsta íbúðarhúsið á landinu sem er nær alfarið úr íslensku efni og aðallega úr íslensku timbri.
Burðarvirki hússins var allt smíðað á staðnum með hefðbundnum hætti. Efni í það kemur úr grenitrjám sem felld voru á síðasta ári í Öskjuhlíðinni til að auka flugöryggi við Reykjavíkurflugvöll. Tandraberg á Eskifirði sá um þá fellingu og flutti viðinn austur til nýtingar. Fyrirtækið Skógarafurðir á Víðivöllum í Fljótsdal annaðist síðan flettingu og úrvinnslu á efninu í staðlaða planka eftir að hafa, fyrst íslenskra fyrirtækja, fengið vottun til að framleiða burðarviði.
Heimild: Mbl.is
Efni: Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn












