Home Fréttir Í fréttum Ný Ölfusárbrú svalar vatnsþörf stækkandi byggðar og fangelsis

Ný Ölfusárbrú svalar vatnsþörf stækkandi byggðar og fangelsis

30
0
Ný Ölfusárbrú svalar vatnsþörf stækkandi byggðar og fangelsis
Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar er í smíðum við árbakkann. RÚV – Arnar Halldórsson

Ný Ölfusárbrú svalar vatnsþörf stækkandi byggðar og fangelsis

Sex vatnsrör liggja í gegnum nýja Ölfusárbrú til að anna vatnsþörf í ört stækkandi sveitarfélagi Árborgar. Flutningsgeta verður allt að fjórum sinnum meiri en áður.

Ný Ölfusárbrú getur flutt allt að fjórum sinnum meira vatn yfir Ölfusá en núverandi brú. Vatnsþörfin í Árborg eykst með stækkandi byggð og nýju fangelsi sem rís í stað Litla-Hrauns.

„Nú er komið á staðinn um helmingurinn af því stáli sem fer í brúargrindina og seinni hlutinn er nú þegar kominn til Þorlákshafnar þannig að það verður farið í að flytja hann hingað næstu kvöld,“ segir Höskuldur Tryggvason verkefnastjóri hjá Vegagerðinni.

Áætlað er að stálgrindin verði tilbúin samansett síðsumars eða í haust og þá verður henni einfaldlega ýtt yfir ánna. Hún vegur ein og sér um 1.600 tonn.

Höskuldur Tryggvason, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni.
RÚV / Arnar Halldórsson

„Hún er byggð þannig að það er hægt að hafa á henni fjórar akreinar en nú í byrjun þá verða tvær akreinar sem munu liggja til vesturs og ein akrein til austurs. Syðsta akreinin verður tekin undir göng og hjólastíg í fyrstu.“

Verður því svo breytt síðar?

„Já ef umferð eykst það mikið að það þarf að taka hana undir umferð þá er hægt að setja utan á brúnna göngu og hjólabrú.“

Stálgrindin í nýju brúnna er um 1.600 tonn að þyngd.
RÚV / Arnar Halldórsson

Þrjár heitavatnslagnir og þrjár kaldavatnslagnir liggja í gegnum nýju brúna. Háspennustrengir, samskiptastrengir fyrir ljósleiðara og rafstrengir verða einnig áfastir við hana. Hvorki er hægt að leiða háspennu né ljósleiðara í gegnum gömlu Ölfusárbrúna. Sveinn Ægir Birgisson, formaður bæjarráðs í Árborg, segir nýju vatnsrörin mikilvæg fyrir vaxandi byggð.

„Á gömlu Ölfusárbrúnni erum við að flytja um 120 sekúndulítra af köldu vatni yfir ánna en á nýju brúnni þá munum við ná um þrisvar til fjórum sinnum meiri afköstum á köldu vatni.“

Sveinn Ægir Birgisson, formaður bæjarráðs Árborgar.
RÚV / Arnar Halldórsson

Nýtt og stærra fangelsi sem verður byggt á Eyrarbakka í stað Litla-Hrauns eykur vatnsþörfina í sveitarfélaginu enn frekar.

„Nýtt fangelsi mun kannski taka jafnmikið vatn og Stokkseyri eitt og sér. Við erum að endurnýja heitavatnspípu niðureftir og erum komin langleiðina niðureftir með þá pípu,“ segir Sveinn Ægir.

Heimild: Ruv.is

Efni: Ný Ölfusárbrú svalar vatnsþörf stækkandi byggðar og fangelsis