
Nú er hægt að þinglýsa kaupsamningum vegna fasteignaviðskipta rafrænt á örfáum mínútum, ferli sem áður gat tekið allt að nokkrar vikur á pappír.
Undanfarin ár hefur tæknin umbreytt fasteignaviðskiptum á Íslandi, en nú hafa orðið merkileg tímamót sem munu breyta upplifun kaupenda og seljenda til frambúðar. Með nýrri lausn Félags fasteignasala og Signicat er nú hægt að þinglýsa kaupsamningum rafrænt á örfáum mínútum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Signicat.
Heimild: Mbl.is











