Home Fréttir Í fréttum 21.09.2026 Norðmenn bjóða út 70 milljóna NOK endurnýjun á NATO-herþjálfunarmiðstöð

21.09.2026 Norðmenn bjóða út 70 milljóna NOK endurnýjun á NATO-herþjálfunarmiðstöð

151
0
Norðmenn bjóða út 70 milljóna NOK endurnýjun á NATO-herþjálfunarmiðstöð
Joint Warfare Centre í Stavanger

Norðmenn bjóða út 70 milljóna NOK endurnýjun á NATO-herþjálfunarmiðstöð

Íslensk verktakafyrirtæki geta nú boðið í umfangsmiklar endurbætur á eldhúsi og matsöluaðstöðu við sameiginlega herþjálfunarmiðstöð NATO, Joint Warfare Centre (JWC), í Stavanger í Noregi. Áætlað verðmæti framkvæmdanna er 70 milljónir norskra króna.

Utanríkisráðuneytið, varnarmálaskrifstofa og Landhelgisgæslan hafa vakið athygli á útboði norsku Mannvirkjastofnunar varnarmálaráðuneytisins, Forsvarsbygg, vegna verkefnisins.

Um er að ræða verkefnið „Restore JWC Kitchen and Canteen Facilities“, útboð C05959, sem snýr að endurnýjun og breytingum á eldhús- og matsöluaðstöðu JWC í Stavanger.

Samkvæmt upplýsingum sem birtar hafa verið hér á landi nær framkvæmdin til tveggja skála sem eru samtals um 1.600 fermetrar.

Áætlað verðmæti um 70 milljónir norskra króna

Útboðsgögn Forsvarsbygg sýna að um er að ræða opið útboð vegna framkvæmda. Útboðið var birt 13. ágúst og áætlað heildarverðmæti samningsins er 70 milljónir norskra króna án virðisaukaskatts.

Útboðsgögnin eru umfangsmikil og ná meðal annars til framkvæmda- og samningsskilmála, öryggis- og umhverfismála, BIM-krafna, kerfisbundinnar verklokavinnu, magns- og verklýsinga, teikninga og verðskrár.

Tilboðsfrestur er 21. september 2026. Frestur til að leggja fram fyrirspurnir samkvæmt útboðskerfinu er 14. september.

Útboðið getur verið áhugavert fyrir íslenska verktaka og undirverktaka sem hafa reynslu af endurbótum atvinnu- og stofnanahúsnæðis og vilja sækja verkefni á norska markaðinn.

Sjá frekar.

Efni: Norðmenn bjóða út 70 milljóna NOK endurnýjun á NATO-herþjálfunarmiðstöð