Norconsult vinnur fýsileikamat á Eyjagöngum
Eyjagöng ehf. hafa gengið frá samningi við norska ráðgjafafyrirtækið Norconsult um að vinna heildstætt kostnaðar- og fýsileikamat á gerð neðansjávarganga milli lands og Eyja. Félagið áætlar síðan að kynna niðurstöður matsins og annarra greininga í lok árs.
Í tilkynningu segir að samkomulagið sé mikilvægur áfangi í að kortleggja tæknilegar forsendur samgöngubótar sem gætu tryggt heilsársvegtengingu meginlandsins við Vestmannaeyja.
„Norconsult býr yfir víðtækri reynslu af hönnun og mati á flóknum neðansjávargöngum, meðal annars í Noregi og Færeyjum og á alþjóðavísu. Norconsult mun nýta nýjustu gögn og alþjóðlega sérþekkingu til að meta raunhæfni verkefnisins út frá þeim jarðfræðigögnum sem Eyjagöng hafa aflað í sumar og helstu stöðlum um öryggiskröfur í jarðgöngum til að finna út áætlaðan framkvæmdakostnað,“ segir í tilkynningu.
Samhliða þessu hafa innlendir ráðgjafar félagsins, verkfræðistofurnar Efla og Völuberg, haft yfirumsjón og eftirlit með rannsóknarborunum á svæðinu.
Sérfræðingar þeirra vinna nú að samantekt á jarðfræðilegum forsendum og munu jafnframt skila kostnaðar- og fýsileikagreiningu á framkvæmd jarðganganna.
Rannsóknarborunum á Landeyjasandi lýkur í lok þessa mánaðar en í heildina hafa verið boraðir 225,5 metrar af þeim 300 metrum sem fyrirhugaðir eru. Fyrr í sumar var jafnframt unnin greining á hafsbotninum í Eyjasundi ásamt því að félagið framkvæmdi kjarnaborun í Vestmannaeyjum.
Heimild: Vb.is
Efni: Norconsult vinnur fýsileikamat á Eyjagöngum












