Home Fréttir Í fréttum Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný

Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný

116
0
Kristján Snorrason með byggingarlóðina í baksýn. mbl.is/Baldur

Kristján Snorrason húsasmíðameistari áætlar að þriðja og síðasta fjölbýlishúsið sem hann byggir á Nónhæð muni koma á markað eftir um tvö og hálft ár, eða í ársbyrjun 2029. Uppbygging hússins hefur af ýmsum sökum tafist, eða um tvö og hálft ár, og er jarðvinna nýhafin.

Nónhæð er á mörkum Kópavogs og Garðabæjar. Þar eru fjölskyldufyrirtækin Nónhæð ehf. og KS verktakar ehf. að byggja 140 íbúðir.

Búið er að byggja 74 íbúðir og er smíði 13 til viðbótar langt komin í lokaáfanga annars hússins af þremur sem rís á reitnum. Af þessum 13 íbúðum verður ein í Nónsmára 11 og 12 íbúðir í Nónsmára 9.

Með því verða íbúðirnar orðnar 87 og munu 53 bætast við þegar þriðja og síðasta húsið kemur á markað.

Heimild: Mbl.is