Home Fréttir Í fréttum Niðurstaða komin í útboði nýs hjúkrunarheimilis við Þursaholt á Akureyri

Niðurstaða komin í útboði nýs hjúkrunarheimilis við Þursaholt á Akureyri

276
0
Niðurstaða komin í útboði nýs hjúkrunarheimilis við Þursaholt á Akureyri
Mynd: Reitir

Niðurstaða komin í útboði nýs hjúkrunarheimilis við Þursaholt á Akureyri

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir hefur formlega tekið tilboði Reita Atvinnuhúsnæðis í uppbyggingu nýs 140 rýma hjúkrunarheimilis við Þursaholt á Akureyri. Með töku tilboðsins er kominn á bindandi samningur milli aðila.

Hjúkrunarheimilið verður um 9.100 fermetrar að stærð og er áætlaður framkvæmdakostnaður um 8,9 milljarðar króna.

FSRE tilkynnti um formlega töku tilboðsins 3. september. Tilboð Reita var næstlægst hvað verð varðaði en félagið bauð jafnframt skemmstan afhendingartíma og hlaut samanlagt hæstu einkunn allra gildra tilboða.

Reitir fengu 79,46 stig af 80 mögulegum fyrir verð og fullt hús, eða 20 stig af 20, fyrir afhendingartíma. Heildareinkunn félagsins var því 99,46 stig af 100 mögulegum samkvæmt valforsendum útboðsins.

Formleg taka tilboðs tafðist

Tilboð Reita hafði þegar í júní verið metið hagstæðast í útboðinu. Alls bárust tíu tilboð frá fimm aðilum.

Í tilkynningu um val tilboðs var tilgreindur tíu daga biðtími sem lauk 25. júní. Engin kæra barst FSRE innan þess tíma og var því heimilt að ganga til samnings við Reiti frá og með 26. júní.

Formleg taka tilboðsins fór hins vegar ekki fram þá.

Samkvæmt FSRE var í útboðsskilmálum áskilinn réttur til að fresta töku tilboðs og hliðra frestum ef rekstraraðili hjúkrunarheimilisins lægi ekki fyrir. Rekstraraðili lá ekki fyrir fyrr en í lok ágúst og dróst formleg taka tilboðsins því fram í september.

FSRE segir jafnframt að tímalína verkefnisins hliðrist til samræmis við þessa töf.

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili mun reka hjúkrunarheimilið en niðurstaða um rekstraraðilann lá formlega fyrir í ágúst.

Reitir og Art-Verk byggja upp heimilið

Nýja hjúkrunarheimilið verður reist við Þursaholt 6 og verður um 9.100 fermetrar að stærð með 140 hjúkrunarrýmum.

Reitir hyggjast byggja húsið með samblandi af forsmíðuðum og forsteyptum einingum og vinna að hönnun og framkvæmdum í samstarfi við Art-Verk ehf.

Samkvæmt upplýsingum Reita nemur leigutilboð félagsins 5.800 krónum á fermetra, sem samsvarar um 633 milljónum króna á ári. Áætlaður framkvæmdakostnaður er um 8,9 milljarðar króna.

Að framkvæmdum loknum tekur við verðtryggður 25 ára leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna. Reitir munu annast rekstur húsnæðisins en rekstur hjúkrunarheimilisins verður í höndum Heilsuverndar.

Næstu skref verkefnisins eru að ljúka frumuppdráttum í samstarfi Reita, rekstraraðila og FSRE. Í kjölfarið tekur við gerð aðaluppdrátta og fullnaðarhönnun áður en framkvæmdir hefjast að fullu.

Heimild: Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Nýtt hjúkrunarheimili við Þursaholt Tilboð frá Reitum valið

Efni: Niðurstaða komin í útboði nýs hjúkrunarheimilis við Þursaholt á Akureyri