Home Fréttir Í fréttum Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit

Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit

45
0
Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit
Rífa á fjölmörg hús á næstunni í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu. mbl.is/Anton Brink

Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit

Vinnuvélar eru í startholunum á svokölluðum Traðarreit vestari í Kópavogi, skammt frá Hamraborg. Þar á að rífa fjölmörg hús á næstunni í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu.

Verktakinn Jáverk er ekki enn kominn með niðurrifsleyfi en það er í ferli hjá Kópavogsbæ.

Undanfarið hefur gróður verið fjarlægður af lóðunum, fjöldi trjátegunda, runna og fjölærra plantna sem nú er að finna á opnu svæði í norðausturhorni Lundarhverfis, í Kópavogsdal og í Trjásafninu í Meltungu austast í Fossvogsdal.

Heimild: Mbl.is