
Neyðarbann við kvarsborðplötum
Banvænn óafturkræfur lungnasjúkdómur, kísillunga, lætur nú á sér kræla hjá steinsmiðum í Kaliforníu í Bandaríkjunum, en ástæðan er sögð vera innöndun á kristölluðu kísilryki sem losnar er steinninn kvars (e. quartz) er skorinn út fyrir borðplötur.
Sky News greindi frá því seint í maímánuði að Vinnueftirlit Kaliforníu hefði fylgt fordæmi Ástrala og hafið ferli sem snýr að neyðarbanni við kvarsborðplötum í kjölfar fjölgunar tilfella kísillunga, en Ástralía var fyrst landa til að banna framleiðslu og uppsetningu á kvars alfarið í byrjun árs 2025.
Heimild: Mbl.is











