Myndir: Nýtt World Class hótel
Á fyrirhuguðu hóteli World Class verður áhersla á að skapa umhverfi sem sameinar heilsu, hreyfingu og slökun.
Nýtt vellíðunarhótel World Class sem rísa skal í Reykjanesbæ á næstu árum, er ætlað að skapa heildstæðan áfangastað fyrir erlenda sem innlenda gesti.
„Við viljum skapa heildrænan áfangastað þar sem gestir geta gist, stundað líkamsrækt, farið í heilsulind og notið baðlónsins sem hluta af sömu upplifun. Áherslan verður á gæði, þjónustu og umhverfi sem sameinar heilsu, hreyfingu og slökun,“ segir Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar og markaðssviðs World Class.
Að baki hönnunar verkefnisins stendur alþjóðlegt teymi undir forystu arkitektastofunnar Populous í samstarfi við íslensku arkitektastofuna Úti og inni.
Við hönnunina hefur innblástur verið sóttur í íslenska náttúru, jarðhita og baðhefðir.

© Aðsend mynd

© Aðsend mynd

© Aðsend mynd

© Aðsend mynd

© Aðsend mynd

© Aðsend mynd

© Aðsend mynd

© Aðsend mynd

© Aðsend mynd

© Aðsend mynd
Heimild: Vb.is
Efni: Myndir: Nýtt World Class hótel












