Home Fréttir Í fréttum Munu skoða að fjölga bílastæðum við Þjóðarhöll

Munu skoða að fjölga bílastæðum við Þjóðarhöll

40
0
Munu skoða að fjölga bílastæðum við Þjóðarhöll
Hildur segir að auðvitað þurfi að huga að bílastæðamálunum í framhaldi framkvæmda við Þjóðarhöllina. Samsett mynd/mbl.is/Hulda Margrét/Tölvuteikning/ÍAV

Munu skoða að fjölga bílastæðum við Þjóðarhöll

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, segir að skoða þurfi bílastæðamál í nágrenni fyrirhugaðrar Þjóðarhallar í sunnanverðum Laugardal og segir það koma til greina að fjölga bílastæðum á svæðinu þó gert sé ráð fyrir því í núverandi deiliskipulagi að þeim muni fækka.

„Þetta er eitthvað sem þarf auðvitað að hugsa í framhaldi af framkvæmdum,“ segir hún í samtali við mbl.is.

„Hvernig komum við fólki inn í höllina á stórviðburði og hversu mikið magn bílastæða er eðlilegt og nauðsynlegt að hafa? Hvernig ferjum við fólk síðan með almenningssamgöngum?“

Í kjölfar kynninga á áformum um fyrirhugaða Þjóðarhöll urðu bílastæðamál við höllina mörgum Facebook-notendum að umtalsefni, enda ljóst að bílastæðum á svæðinu myndi fækka með tilkomu Þjóðarhallar.

 Ekki gert ráð fyrir nýjum bílastæðum

Í núverandi deiliskipulagstillögu Reykjavíkurborgar fyrir Þjóðarhallarsvæðið frá 7. mars 2024 kemur skýrt fram að ekki verði gert ráð fyrir nýjum bílastæðum á lóðinni, heldur muni þeim fækka frá núverandi horfi þar sem hluti þeirra bílastæða sem nú standa við Laugardalshöll muni falla undir stækkaðan byggingarreit.

Helgi Geirharðsson, verkefnastjóri framkvæmdarinnar, sagði í samtali við mbl.is í vikunni að það væri undir borgaryfirvöldum komið hvort horfið verði frá þeim áformum að fækka bílastæðum á svæðinu, enda hafi ákvörðunin verið í höndum borgarinnar frá upphafi.

Svigrúm væri þó til þess að byggja bílastæði á auðum svæðum í grennd við höllina þó ekki sé gert ráð fyrir því í gildandi deiliskipulagi.

Gert er ráð fyrir því að bílastæðum muni fækka á svæðinu með tilkomu Þjóðarhallar. Tölvumyndir/ÍAV

Fleiri lausnir en að fjölga bílastæðum

Hildur segir fjölgun bílastæða þó ekki einu lausnina, enda ljóst að ef blásið yrði til 12.000 manna viðburðar í framtíðar-Þjóðarhöll væri engin leið fyrir alla að koma á bíl.

„Þá þyrftum við að huga að fjöldaflutningum inn á svæðið sem við þekkjum til dæmis dæmi af frá nýlegum tónleikum Laufeyjar í Kópavoginum, og þar tókust fólksflutningar með almenningssamgöngum til og frá bílastæðum gríðarlega vel,“ segir hún.

Aðspurð um það hvort borgarstjórn hyggist fjölga bílastæðum á svæðinu sjálfu og beita sér fyrir breytingum á fyrirliggjandi deiliskipulagi segir Hildur það eina sviðsmyndl.

„Ég hugsa að við munum taka allar sviðsmyndir til skoðunar og reyna að komast að skynsamlegri niðurstöðu,“ segir hún.

Heimild: Ruv.is

Efni: Munu skoða að fjölga bílastæðum við Þjóðarhöll