Múlaþing býður út stækkun Grunnskóla Seyðisfjarðar
Múlaþing hefur auglýst útboð vegna umfangsmikillar stækkunar Grunnskóla Seyðisfjarðar við Skólaveg 1. Verkefnið felur í sér um 830 fermetra viðbyggingu ásamt fullnaðarfrágangi innan- og utanhúss og lóðarfrágangi.
Framkvæmdin snýr að stækkun skólans í tvær áttir. Annars vegar verður reist viðbygging til norðurs í sama útliti og núverandi skólahús, ásamt tengibyggingu við íþróttahúsið. Hins vegar verður byggð ný tengibygging til suðurs sem tengist nýrri viðbyggingu.
Nýbyggingin verður reist á steyptum undirstöðum með steyptum plötum og veggjum, ásamt stálbitum og stálsúlum og timburþakvirki. Heildarstærð stækkunarinnar verður um 830 fermetrar brúttó.
Verkið felur í sér:
- Jarðvinnu
- Uppsteypu mannvirkisins
- Fullnaðarfrágang utanhúss
- Fullnaðarfrágang innanhúss
- Frágang lóðar
Verkkaupi leggur sérstaka áherslu á vandaða umgengni um framkvæmdasvæðið á framkvæmdatíma.
Framkvæmdir geta hafist strax að lokinni samningsgerð og skulu vera að fullu lokið fyrir 15. júlí 2028.
Helstu magntölur verksins
| Verkþáttur | Magn |
|---|---|
| Uppgrafið efni | 2.150 m³ |
| Mótasmíði | 2.766 m² |
| Steinsteypa | 450 m³ |
| Utanhússklæðning | 320 m² |
| Þakfrágangur | 830 m² |
| Málun innanhúss | 2.136 m² |
| Frárennslislagnir | 230 m |
| Gólfhitalagnir | 1.600 m |
| Loftstokkar í loftræsikerfi | 515 m |
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með 15. júní 2026. Þeir sem óska eftir gögnum skulu senda beiðni á netfangið signy@teknik.is og tilgreina nafn fyrirtækis, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Múlaþings að Lyngási 12 á Egilsstöðum fyrir klukkan 14:00 fimmtudaginn 23. júlí 2026. Tilboðin verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Heimild: Múlaþing
Efni:bMúlaþing býður út stækkun Grunnskóla Seyðisfjarðar
„Leitar þú að verktaka? Skoðaðu fyrirtækjaskrá VERKTAKAR.IS”












