
Mjólkurstöðin færð til fyrri dýrðar
Nýtt hótel í Reykjavík, Mjólk Hótel, verður opnað á Snorrabraut 54 á næstunni, eftir gagngerar endurbætur á þessu sögufræga húsi. Skírskotar nafn hótelsins til þess að upphaflega var mjólkurstöð í húsinu.
Fasteignafélagið Bergey á húsið en Mjólk Hótel ehf., sem er í eigu stofnenda Bergeyjar og Hjálmars Karlssonar, hefur rekstur hótelsins með höndum. Magnús Berg Magnússon, stjórnarformaður Bergeyjar og einn eigenda hótelsins, sýndi Morgunblaðinu hótelið í síðustu viku.
Hófst árið 2022
„Verkefnið, eins og það snýr að okkur, hófst árið 2022 þegar við fórum að skoða þetta verkefni og gerðum svo tilboð í húsið þá um haustið. Í kjölfarið fórum við að kanna með arkitektum og verkfræðingum hvort það væri yfirhöfuð hægt að breyta húsinu í hótel og hvort húsið myndi rúma þann einingafjölda sem við töldum hæfilegan.
Það var mikil vinna en það var í janúar 2023 sem við sendum fyrstu fyrirspurn til skipulagsyfirvalda og í júlí 2023 samþykktu skipulagsyfirvöld breytingu á deiliskipulaginu svo heimilt væri að útbúa hótel. Það var svo í ágúst 2024 að byggingarleyfið var formlega gefið út,“ segir hann.

22 hótelíbúðir
Snorrabraut 54 er þriggja hæða hús, að meðtöldum kjallara. Búið er að innrétta 22 hótelíbúðir í húsinu sem eru allar með litlum eldhúskrók. Innanhússhönnun hótelsins er í höndum Júlíönu Sólar Sigurbjörnsdóttur hjá Officina Studio, eiginkonu Magnúsar Bergs, en Sigurður Oddsson, sem er grafískur hönnuður, hannaði vörumerki og myndmál.
Samkvæmt fasteignaskrá var Snorrabraut 54 byggð 1929. Hönnuður hússins var Einar Erlendsson húsameistari. Líkindi eru með byggingunni og Héraðsskólanum í Reykholti, sem teiknaður var af Guðjóni Samúelssyni húsameistara ríkisins. Einar var aðstoðarmaður Guðjóns á þessum tíma og síðar húsameistari ríkisins. Guðjón nefndi útlit hússins íslenskan hamrastíl. Þá er svipur með Snorrabraut 54 og Sundhöll Reykjavíkur, vestan við húsið, en hún var einnig unnin á teiknistofu húsameistara.
„Það er einstakur arkitektúr á þessu húsi og höfum við fært það til upprunalegs horfs,“ segir Magnús Berg um Snorrabraut 54 og tekur sem dæmi að búið sé að setja sams konar glugga á húsið og voru upphaflega á því. Þá hafi gólfplata í kjallara verið lækkuð til að skapa meiri lofthæð en um leið hafi gluggar verið síkkaðir. Þá sé mikil lofthæð á efstu hæð hússins, fjórir til fimm metrar, sem geri íbúðirnar afar glæsilegar.

Nánast endurbygging
Magnús Berg segir endurgerðina hafa kostað sitt en að verkefnið komi engu að síður vel út fjárhagslega.
„Þetta var nánast endurbygging á húsinu en við þurftum meðal annars að brenna veggi að innan til þess að koma í veg fyrir myglu. Ástandið var verst í ketilhúsinu,“ segir Magnús Berg, en húsið var sem áður segir upphaflega teiknað fyrir iðnað.
„Þá var hinn fallegi og einkennandi strompur á húsinu í mjög slæmu ástandi og þurfti því að steypa hann upp á nýtt. Það er afar ánægjulegt að geta varðveitt svona hús og notað þau áfram en að mínu mati hefur þröskuldurinn fyrir því að rífa hús á Íslandi oft verið lágur. Fyrir vikið hafa mörg gömul hús verið rifin sem hefðu getað gefið viðkomandi hverfum mikinn karakter. Þetta er jafnframt umhverfisvænasta leiðin til að byggja,“ segir Magnús Berg að lokum.

Heimild: Mbl.is











