
Fjárfesting Bláa Lónsins í Þjórsárdal og á Laugarvatni hljóðar upp ríflega 20 milljarða króna.
Forsvarsmenn Bláa Lónsins standa í stórræðum. Framkvæmdir eru í fullum gangi við byggingu Fjallabaðanna við Rauðukamba í Þjórsárdal en þar er einnig verið að byggja 40 herbergja hótel. Þá eru endurbygging Fontana á Laugarvatni langt komin. Fjárfesting Bláa lónsins í Þjórsárdal er metin á um 20 milljarða króna og kostnaður við endurbyggingu Fontana hleypur á milljörðum.
Fyrsta skóflustungan að Fjallaböðunum í Þjórsárdal var tekin í nóvember 2022 en undirbúningur og hönnun nær aftur til ársins 2015. Framkvæmdir eru nú langt komnar.
„Fjárfestingin þegar allt er tekið saman er um tuttugu milljarðar króna og við fjármögnum hana bæði með eiginfjárframlagi og lánsfjármögnun,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins. „Bláa Lónið hefur frá stofnun fjárfest fyrir um sextíu milljarða með áherslu á vísindi, hönnun og gæði, sú áhersla hefur skilað því að félagið er í dag yfir þrjátíu ára gamalt vaxtarfélag.“

© Aðsend mynd (AÐSEND)
Stefnt er að því að opna fyrsta hluta starfseminnar sumarið 2027 og að allt verði komið í rekstur vorið 2028. Sigríður Margrét segir að segir að framkvæmdirnar gangi heilt yfir í takt við áætlanir, sumir verkþættir séu jafnvel á undan áætlun.
„Þetta eru umfangsmiklar framkvæmdir, við erum að byggja einstakt hágæðahótel, fjallaböð, gestastofu, smáhýsi, tjaldstæði, þjónustuhús og svo má ekki gleyma íbúðum í Árnesi fyrir starfsfólk á svæðinu sem verður um 200 talsins þegar við verðum komin í fullan rekstur.“

© Aðsend mynd (AÐSEND)
Ólíkt öllu öðru
Sigríður Margrét hefur tala um upplifunar- og vellíðunarferðamennsku, sem stærsta tækifæri Íslands. Sú tegund ferðaþjónustu fari vel saman við styrkleika Bláa Lónsins og náttúru Íslands.
„Uppbyggingin í Þjórsárdal er ólík öllu öðru, þar er að finna margar einstakar menningar- og náttúruperlur, það verður áhersla á afþreyingu sem tekur mið af árstíðunum og það verður einstök baðupplifun í boði,“ segir hún.
„Við sjáum fyrir okkur að svæðið verði aðlaðandi jafnt fyrir Íslendinga sem og erlenda ferðamenn, þeir kröfuhörðu fá hágæða gistingu í Mountain Retreat en á sama tíma verður gestastofan í mynni dalsins öllum opin og í nágrenni hennar verður hægt að gista í smáhýsum og á tjaldsvæðum. Fjallaböðin verða opin og aðgengileg öllum, dagsgestum jafnt sem hótelgestum.”

© Aðsend mynd (AÐSEND)
Þjórsárdalur er eitt merkasta náttúru- og sögusvæði landsins. Af þeim sökum hafa verið viðraðar áhyggjur af því uppbyggingin muni auka álag á náttúru og innviði í dalnum.
„Frá upphafi hefur Bláa lónið lagt sértaka vinnu í umhverfismál og náttúruvernd í uppbyggingarverkefninu í Þjórsárdal,“ segir Sigríður Margrét. „Ég ætla nefna þrjú dæmi því til stuðnings.
Í fyrsta lagi þá munu gestir Fjallabaðanna leggja bílum sínum við gestastofuna og við munum keyra þá inn í dalinn, gagngert til þess að draga úr álagi og minnka umferð.
Í öðru lagi þá eru allar okkar byggingar á svæðinu BREEAM vottaðar (vottunarkerfi fyrir sjálfbærni bygginga) og nýverið fengum við hæstu hönnunareinkunnina af þeim byggingum sem hafa komist í gegnum hönnunarvottun fyrir nýbyggingar á Íslandi hingað til.
Í þriðja lagi þá plöntuðum við þrjátíu þúsund skógarplöntum í dalnum í samstarfi við Land og skóg fyrir fjórum árum síðan til þess að kolefnisjafna framkvæmdina og rekstur okkar í Þjórsárdal.“
Heimild: Vb.is











