
Mikilvægt að framkvæmdir tefjist ekki við Sjúkrahúsið á Akureyri
Framkvæmdir við nýja legudeild Sjúkrahússins á Akureyri eru í fullum gangi. Þá vonast forsvarsfólk SAk til þess að nýtt leigurými við Óseyri, sem á að hýsa endurhæfingu sem áður var á Kristnesi, verði tekið í notkun í desember.
Stefnt er að því að nýtt leigurými sem á að hýsa endurhæfingu dag- og göngudeildar Sjúkrahússins á Akureyri verði tekið í notkun 1. desember næstkomandi. Starfsemin fór áður fram á Kristnesi en hún lagðist af í sumar sökum myglu og rakaskemmda í húsnæðinu í Eyjafjarðarsveit.
Nýja leigurýmið er 800 fermetrar og er við Óseyri. Rýmið er hannað og innréttað með þarfir SAk að leiðarljósi. Legudeildin sem áður var á Kristnesi hafði um 20 rými en eftir að starfsemin lagðist af þar hafa verið á bilinu 6-9 legurými inni á SAk.
Vinna við fyrsta áfanga nýrrar legudeildar SAk er í fullum gangi. Þar er verið að gera bílastæði sem á að leysa gamla bílastæðið af hólmi en þar mun nýja deildin rísa.
Samkvæmt upplýsingum frá Nýja Landspítala ohf. sem sér um framkvæmdirnar er vonast til að næsti áfangi verði boðinn út innan fárra mánaða. Ef allt gengur að óskum gætu framkvæmdir hafist á haustmánuðum 2027. Það er þó sett fram með ýmsum fyrirvörum, meðal annars um fjármagn og að enginn kæri útboðið. Kærur á útboðum hafa tafið framkvæmdir við Hringbraut verulega.
Guðjón Hauksson, forstjóri SAk, segir gríðarlega mikilvægt að verkið vinnist hratt:
„Við bindum vonir við það á Sjúkrahúsinu á Akureyri að það verði engar tafir á þessari nýju legudeildarálmu. Það er gríðarlega mikilvægt.“
Heimild: Ruv.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Staða framkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri
Efni: Mikilvægt að framkvæmdir tefjist ekki við Sjúkrahúsið á Akureyri











