Home Fréttir Í fréttum Mikil uppbygging í víkingaþorpinu

Mikil uppbygging í víkingaþorpinu

65
0
Mikil uppbygging í víkingaþorpinu
Fjörukráin sést fremst á myndinni en t.h. er Hótel Víking sem hefur verið stækkað mikið. Baka til eru lítil víkingahús sem tilheyra hótelinu. mbl.is/Eyþór

Mikil uppbygging í víkingaþorpinu

Mikið stendur til hjá Jóhannesi Viðari Bjarnasyni og hans fólki á Fjörukránni og Hótel Víking í Hafnarfirði. Um næstu mánaðamót verður þeim tímamótum fagnað að Hótel Víking hefur verið tvöfaldað að stærð og er orðið að fjögurra stjörnu hóteli. Eftir stækkunina verða 108 herbergi á hótelinu. Jafnframt hefur nýr og glæsilegur veislusalur verið innréttaður í kjallara en hann rúmar 200 gesti.

„Þetta er mikil viðbót. Við getum farið í 110-120 herbergi og svo er möguleiki á að stækka þetta enn frekar. Við klárum þennan áfanga og sjáum til með framhaldið á næsta ári,“ segir Jóhannes í samtali við Morgunblaðið.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Ekki tekið vel í tillögu um enn frekari stækkun Hótel Viking – Sögufrægt hús yrði að víkja

Efni: Mikil uppbygging í víkingaþorpinu