Meirihluti óseldra nýbygginga í Reykjavík og Hafnarfirði
Alls eru 1.038 íbúðir taldar óseldar í Reykjavík og 508 í Hafnarfirði, samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins.
Rúmlega þrjár af hverjum fjórum óseldum íbúðum í nýbyggingarverkefnum á höfuðborgarsvæðinu eru í Reykjavík og Hafnarfirði. Alls eru 1.038 íbúðir taldar óseldar í Reykjavík og 548 í Hafnarfirði, samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins.
Í Hafnarfirði eru 22 nýbyggingarverkefni í úttektinni og 21 í Reykjavík. Af þeim 1.644 íbúðum sem teljast óseldar í sveitarfélögunum tveimur eru 935 auglýstar til sölu. Það eru rúmlega sjö af hverjum tíu íbúðum sem auglýstar eru til sölu í öllum 69 verkefnunum.
Í Garðabæ eru 18 verkefni með samtals 686 íbúðum. Þar eru 415 íbúðir skráðar seldar og 271 óseld, en 214 auglýstar til sölu. Í Kópavogi eru fjögur verkefni með 332 íbúðum, þar af 180 óseldar.
Mun færri íbúðir eru óseldar í Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi, eða samtals 29.
Heimild: Vb.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Þúsundir nýrra íbúða óseldar
Efni: Meirihluti óseldra nýbygginga í Reykjavík og Hafnarfirði












