Home Fréttir Í fréttum Malbikað yfir Íslandsmet

Malbikað yfir Íslandsmet

13
0
Malbikað yfir Íslandsmet
Steypti kaflinn á Vesturlandsvegi. Myndin er tekin 1973. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon

Malbikað yfir Íslandsmet

Vesturlandsvegur í Kollafirði var malbikaður í liðinni viku sem væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að ekki hafði verið átt við vegkaflann í 54 ár eða síðan hann var steyptur árið 1972.

Um Íslandsmet er að ræða en ekkert slitlag á þjóðveginum hefur dugað svo lengi.

Vegagerð frá Korpu upp í Kollafjörð var boðin út í árslok 1970.

Um var að ræða tvo áfanga, alls 11 km vegalengd, og lægstbjóðandi í þá báða var verktakafyrirtækið Þórisós sf. Var miðað við fullfrágenginn veg með 10 sm þykku malbiki og var öll brúargerð innifalin.

Í maí 1972 var hins vegar gengið frá samkomulagi um að breyta um og steypa veginn í stað þess að malbika og hækkaði breytingin heildarkostnaðinn um 7%, að því er fram kom í fjölmiðlum á þessum tíma.