Home Fréttir Í fréttum Loka húsnæðinu vegna myglu

Loka húsnæðinu vegna myglu

88
0
Loka húsnæðinu vegna myglu
Ráðgjafar- og greiningarstöð ríkisins. mbl.is/Birta Margrét

Loka húsnæðinu vegna myglu

Ráðgjafar- og greiningarstöð (RGR), sem hefur það hlutverk að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem geta leitt til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem auka lífsgæði þeirra, verður lokuð í þessari viku og mögulega lengur vegna mygluvanda í húsnæðinu.

Sigurbjörg Fjölnisdóttir forstjóri RGR segir það hafa komið í ljós við skoðun á húsnæðinu að mygla hafi hreiðrað um sig á salernum einni hæð fyrir ofan skrifstofurými RGR og í stokk sem leiðir á milli hæða, og því hafi yfirmenn stofnunarinnar haft áhyggjur af því að myglan væri ekki einangruð við eina hæð eða einn stað í byggingunni.

Heimild: Mbl.is