
Lögnin órofin en gæti þurft að leggja aðra
Mögulegt er að leggja þurfi aðra almannavarnarlögn til Vestmannaeyja til þess að koma í stað lagnarinnar NSL-4 sem altjón er talið hafa orðið á að sögn verkefnisstjóra.
Ákvörðun hefur þó verið tekin um það að ljúka útlögn pípunnar, en skemmdir urðu á henni aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst.
Eyþór Sigurðsson, verkefnisstjóri framkvæmdarinnar, segir útlit fyrir að útlögn pípunnar sem hófst að nýju í gær ljúki seinna í dag og að pípan verði tekin á land í Eyjum eftir að síðustu siglingu lýkur hjá Herjólfi.
„Útlögnin hefur gengið vel eftir að hún hófst aftur í gær, en við höfum verið að miða við það að láta þessa vinnu hafa sem minnst áhrif í höfninni, þar sem er ansi mikil siglingaumferð,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Lögnin ekki í sundur
Hann kveðst ekki geta gefið neinar upplýsingar um eðli tjónsins þar sem rannsókn málsins sé á afar viðkvæmu stigi, en staðfestir að ákveðið óvænt atvik hafi valdið tjóninu fremur en grundvallarmistök í hönnun eða lagningu lagnarinnar.
„Það er engin framkvæmd, hversu hönnuð eða vel útfærð sem hún er, sem ekki verður atvikalaus að einhverju leyti og þessi framkvæmd er ekki undanskilin í því. En það er ekkert hægt að koma frekar inn á eðli atviksins eða skemmda,“ segir hann.
Þá getur hann staðfest það að lögnin hafi ekki farið í sundur, enda hafi verið ákveðið að halda útlagningunni áfram.
Atvikið í frekari skoðun
Samkvæmt tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ er litið á tjónið sem altjón, en Eyþór segir ákvörðun þó hafa verið tekna um að skynsamlegast sé að ljúka útlagningu á þessari pípu vegna þess hve erfiðar aðstæður eru.
Tjónið átti sér stað þegar um sex kílómetrar voru eftir af 12,5 kílómetra leið lagnarinnar til Eyja og segir Eyþór ekki hægt að meta það á þessari stundu hvort ófyrirsjáanlegar eða óstjórnlegar umhverfisaðstæður hafi valdið tjóninu að einhverju leyti.
„Atvikið er náttúrulega í frekari skoðun, þannig að það eina sem var í raun og veru metið á þessum tímapunkti var hvort það væri skynsamlegra að halda áfram eða stöðva framkvæmdina,“ segir hann.
„Það er talið skynsamlegri og betri kostur að halda áfram, en það liggur svo sem ekkert fyrir hvað gerðist fyrir atvikið sjálft.“
Heimild: Mbl.is
Efni: Lögnin órofin en gæti þurft að leggja aðra











