Home Fréttir Í fréttum 02.06.2026 Reykjanesbær býður út lóðarframkvæmdir við Myllubakkaskóla – Útboð

02.06.2026 Reykjanesbær býður út lóðarframkvæmdir við Myllubakkaskóla – Útboð

45
0
Útboð
Mynd: Reykjanesbær

Útboð:

Reykjanesbær hefur auglýst útboð vegna lóðarframkvæmda við Myllubakkaskóla samkvæmt útboði nr. 31-26-002.

Verkið felur í sér framkvæmdir á lóð skólans samkvæmt útboðslýsingu og þeim gögnum sem fylgja útboðinu.

Efla hefur umsjón með útboðinu

Umsjónaraðili verðfyrirspurnar er Verkfræðistofan Efla.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg rafrænt á útboðsvef BIDCO / Reykjanesbæjar frá og með 20. maí 2026 klukkan 14:00.

Fram kemur í útboðslýsingu að öllum fyrirspurnum skuli skila í gegnum útboðskerfið og að fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verði ekki svarað.

Tilboð opnuð í júní

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef BIDCO / Reykjanesbæjar eigi síðar en klukkan 13:00 þann 2. júní 2026.

Tilboð verða opnuð sama dag klukkan 13:05.

Lóðarframkvæmdir við Myllubakkaskóla eru hluti af áframhaldandi uppbyggingu og endurbótum á skólamannvirkjum í Reykjanesbæ.

Heimild: Reykjanesbær