„Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi
Viðbragðsaðilar náðu að ráða niðurlögum elds sem kviknaði í timburhúsi í miðbæ Stykkishólms í gærkvöldi.
Þetta sagði Jónas Hallgrímur Ottósson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, í samtali við mbl.is.
Lögregla og slökkvilið hafa lokið frágangsvinnu á vettvangi, en ljóst er að tjónið af völdum eldsins er gríðarlegt og húsið nærri brunnið til kaldra kola.
„Ég skildi það af þeim sem voru á vettvangi að það væri lítið eftir af því,“ segir Jónas.
Húsið var mannlaust þegar eldurinn kviknaði og slökkviliði barst tilkynning um klukkan hálf sex í gærdag, en upptök eldsins liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Heimild: Mbl.is












