Home Fréttir Í fréttum Lét teikna hagkvæmar íbúðir

Lét teikna hagkvæmar íbúðir

23
0
Hagkvæmar íbúðir
Hér má sjá fyrri teikningu af reitnum. Teikningar að nýrri útfærslu húsanna eru í vinnslu. Teikningar/KRark/ONNO

Hagkvæmar íbúðir

Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs, hefur hafið uppbyggingu 177 íbúða við Hjallahraun í Hafnarfirði í trausti þess að niðursveiflunni verði lokið þegar þær koma á markað. Þá hafi hann látið endurhanna íbúðirnar með tilliti til eftirspurnar til að auka líkur á að þær muni seljast.

Íbúðirnar verða í Hjallahrauni 2 í Hafnarfirði en þetta er fyrsti áfanginn hjá Þingvangi í uppbyggingu 390 íbúða á reitnum.

Þingvangur keypti lóðina fyrir fimm árum og væri uppbyggingin langt komin ef haldið hefði verið við upphafleg áform.

„Við erum ekki í lóðabraski þar sem við lítum á okkur sem húsbyggjendur og það versta sem getur gerst hjá okkur er að framleiða lager af óseldum/óleigðum fasteignum sem standa ónýttar til lengri tíma,“ segir Pálmar sem frestaði verkefninu vorið 2024 til að eiga ekki á hættu að sitja uppi með margar óseldar íbúðir vegna markaðsaðstæðna. Það stöðumat reyndist rétt og er nú rætt um að 1.700 nýjar íbúðir séu óseldar á höfuðborgarsvæðinu.

Heimild: Mbl.is