Home Fréttir Í fréttum Land undir nýjan kirkjugarð loksins fundið á Selfossi

Land undir nýjan kirkjugarð loksins fundið á Selfossi

38
0
Land undir nýjan kirkjugarð loksins fundið á Selfossi
Núverandi kirkjugarður á Selfossi er við Selfosskirkju en er við það að fyllast. Selfoss – Magnús Hlynur Hreiðarsson

Land undir nýjan kirkjugarð loksins fundið á Selfossi

Leitað hefur verið logandi ljósi að landi undir nýjan kirkjugarð á Selfossi þar sem núverandi garður er við það að fyllast. Nú hefur fundist staður þar sem Selfyssingar verða jarðsettir í framtíðinni kjósi þeir að hvíla á nýja staðnum.

Núverandi kirkjugarður á Selfossi við bakka Ölfusár og rétt hjá kirkjunni er langt kominn með að fyllast og því hafa bæjaryfirvöld í Árborg verið að leita að landi undir nýjan garð. Nokkrir staðir hafa verið skoðaðir innan sveitarfélagsins en þeir hafa ekki þótt heppilegir en nú er líklega búið að finna land undir nýjan kirkjugarð.

Bragi Bjarnason, sem er bæjarstjóri í Árborg.
Selfoss / Magnús Hlynur Hreiðarsson

Bragi Bjarnason er bæjarstjóri í Árborg.

„Það hefur gengið vel að finna nýtt svæði og við erum nú að skoða svæði austan við Selfoss með nágrönnum okkar í Flóahreppi. Þetta er stórt svæði, sem er í eigu Sveitarfélagsins Árborgar, og lítur bara mjög vel út með framhaldið og ég vona bara að við getum klárað skipulagsvinnuna með Flóahreppi núna á næstu mánuðum þannig að við getum fastsett kirkjugarð til framtíðar,” segir Bragi.

Þannig að það verður kirkjugarður í Flóahreppi eða í samstarfi við þau?

„Já, rétt utan við Selfoss, við sveitarfélagamörkin.”

Talið er að núverandi kirkjugarður á Selfossi dugi í fjögur til fimm ár í viðbót.
Selfoss / Magnús Hlynur Hreiðarsson

Bragi segir að nýi staðurinn sé um átta hektarar og ætti því að duga mjög lengi sem kirkjugarður en garðurinn verður byggður upp í nokkrum áföngum.

„Við erum að horfa já á stórt svæði sem á að nýtast til langrar framtíðar,” segir Bragi.

Nýi kirkjugarðurinn verður á sveitarfélagsmörkum Árborgar og Flóahrepps austan við Selfoss á stóru landi þar.
Selfoss / Magnús Hlynur Hreiðarsson

Hvað er hægt að nota núverandi kirkjugarð lengi í viðbót heldur þú?

„Áætlanir tala um svona fjögur til fimm ár miðað við hvernig þróunin hefur verið á undanförnum árum, þannig að við erum með góðan tíma en við þurfum að láta hendur standa fram úr ermum þannig að við lendum ekki í vandræðum,” segir Bragi brattur með nýja kirkjugarðinn.

Heimild: Ruv.is