Home Fréttir Í fréttum Lagði legstein á lóð BSO

Lagði legstein á lóð BSO

57
0
Lagði legstein á lóð BSO
Legsteinninn er á gömlu BSO-lóðinni við Hofsbót á Akureyri. RÚV – Siguróli Sigurðsson

Lagði legstein á lóð BSO

Listamaður setti upp legstein til minningar um Bifreiðastöð Oddeyrar sem stóð við Strandgötu á Akureyri. Gjörningurinn hefur vakið mikla athygli.

Áki Frostason, einnig þekktur sem raftónlistarmaðurinn Pitenz á Akureyri, lagði legstein á gömlu BSO-lóðina við Strandgötu á Akureyri á föstudaginn. Töluvert hefur verið fjallað um Bifreiðastöð Oddeyrar á Akureyri sem var gert að víkja af lóð í Strandgötu þar sem hún stóð í 70 ár.

Hreyfill tók við rekstrinum 1. júní. Löng og mikil saga er á bak við flutninga BSO sem meðal annars stefndi Akureyrarbæ.

Frá flutningum á BSO húsinu 14. júní.
– Rúv-Kristófer Óli Birkisson

Legsteinninn er á miðri lóðinni á gatnamótum Drottningarbrautar og Strandgötu. Blóm hafa verið lögð við legsteininn og Áki hvetur vegfarendur til að leggja blóm á leiðið ef þeir vilja minnast BSO.

Hús BSO var flutt í Jólagarðinn 14. júní. Ekki er búið að ákveða hvernig það verður nýtt en þar er Jólahúsið sem laðar marga ferðamenn að á hverju ári.

Legsteinninn er snyrtilega settur niður á miðri lóðinni
RÚV – Siguróli Sigurðsson

Heimild: Ruv.is