Krefur byggingarfulltrúa svara
Umboðsmaður barna hefur krafið byggingarfulltrúa Reykjavíkur um nánari upplýsingar vegna þeirrar ákvörðunar að heimila notkun húsnæðis sem hýsir neyðarvistun meðferðarheimilisins Stuðla, með bráðabirgðaráðstöfunum.
Fyrir liggur að öryggis- og lokaúttektarvottorð hefur ekki verið gefið út, en athugasemdir voru gerðar við brunahólfandi hurðir sem samræmast ekki hönnunargögnum.
Húsnæðið var tekið aftur í notkun í apríl á síðasta ári, eftir að viðbygging sem hýsti neyðarvistun gjöreyðilagðist í bruna í október 2024. Bráðabirgðaráðstöfunin hefur því varað í 16 mánuði.
17 ára drengur lést í brunanum, en rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) leiddi í ljós að alvarlegir annmarkar voru á brunavörnum og viðbyggingin hafði ekki fengið öryggis- og lokaúttektarvottorð, ekki frekar en nú. Samkvæmt skýrslu HMS hefði mátt koma í veg fyrir mannslát hefðu brunavarnir verið í samræmi við brunahönnun.
„Mikilvægt að fyllsta öryggis sé gætt“
Í samskiptum umboðsmanns barna við skrifstofu skipulags- og byggingarmála hjá Reykjavíkurborg kom fram að byggingarfulltrúi hefði þann 5. maí sl. tilkynnt eiganda eignarinnar, Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum, að notkun mannvirkisins væri óheimil í óbreyttu ástandi. Að fengnum svörum frá eiganda var hins vegar ákveðið að heimila tímabundna notkun með bráðabirgðaráðstöfunum sem meðal annars felast í aukinni mönnun. Eftirfylgni með þeirri ráðstöfun stendur enn yfir.
„Á neyðarvistun Stuðla dvelja börn sem hafa verið frelsissvipt til þess að tryggja öryggi þeirra og því er sérstaklega mikilvægt að fyllsta öryggis sé gætt. Umboðsmaður barna telur því mikilvægt að fyrir liggi með skýrum hætti á hvaða grundvelli notkun mannvirkisins hefur verið heimiluð og hvernig öryggi þeirra barna sem þar dvelja er tryggt,“ segir í bréfi umboðsmanns barna til byggingarfulltrúa.
Óskað er eftir upplýsingum um þær bráðabirgðaráðstafanir sem voru settar sem skilyrði fyrir áframhaldandi notkun, þar á meðal hvaða kröfur voru gerðar um aukna mönnun. Einnig hvernig hefur verið fylgst með þeim kröfum og öðrum ráðstöfunum.
Þá er óskar umboðsmaður eftir upplýsingum um núverandi stöðu málsins, meðal annars stöðu úrbóta á brunahólfandi hurðum, og hvenær áætlað er að úrbótum verði lokið svo unnt verði að gefa út vottorð um öryggisúttekt fyrir mannvirkið.
Framkvæmdir standa yfir á Stuðlum, en til stendur að breyta meðferðarheimilinu í það sem hefur verið kallað félagsleg bráðamóttaka ungmenna. Þar verður neyðarvistun og aðstaða til að vista börn sem eru í gæsluvarðhaldi eða afplána dóma. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir standi yfir að minnsta kosti út þetta ár.
Heimild: Mbl.is
Efni: Krefur byggingarfulltrúa svara












