Home Fréttir Í fréttum Kólnun á húsnæðis­markaði Kaup­manna­hafnar

Kólnun á húsnæðis­markaði Kaup­manna­hafnar

60
0
Kólnun á húsnæðis­markaði Kaup­manna­hafnar
Kaupmannahöfn. Mynd: Vb.is

Kólnun á húsnæðis­markaði Kaup­manna­hafnar

Fjöldi íbúða til sölu í Kaupmannahöfn hefur aukist um 70% frá upphafi árs og telja sérfræðingar að íbúðaverð geti tekið að lækka á næstunni.

Framboð íbúða í Kaupmannahöfn hefur aukist verulega eftir mörg ár af miklum verðhækkunum og takmörkuðu úrvali. Í júlí fjölgaði íbúðum á sölu um 7,4% og frá áramótum hefur framboðið aukist um tæp 70%, samkvæmt nýjum tölum Boligsiden.

Á síðasta ári hækkaði verð á íbúðum í borginni um 23%. Danski seðlabankinn hefur varað við þróuninni en aukið framboð gæti nú dregið úr verðþrýstingi.

Fyrir ári voru 1.160 íbúðir til sölu í Kaupmannahöfn. Í júlí voru þær orðnar 1.750 og um 120 fleiri en mánuðinn áður.

„Fyrir ári þráðu fasteignasalar fleiri íbúðir á markað. Nú streyma þær inn. Þetta eru gríðarleg umskipti,“ segir Mira Lie Nielsen, húsnæðishagfræðingur hjá Børsen.

Heimild: Vb.is