
Kaldalón kaupir húsnæði Fjarðarkaupa
Fasteignafélagið Kaldalón hefur keypt allt hlutafé í 1717. ehf, en félagið á fasteignina þar sem verslun Fjarðarkaupa er starfrækt. Fasteignin er 4.271 m² verslunarhúsnæði og hvílir á um 17.300 m2 lóð við Reykjavíkurveg. Á lóð 1717 ehf. eru einnig þjónustustöðvar fyrir orkusölu.
Samhliða þessu var í dag tilkynnt um að Samkaup, dótturfélag Dranga, hefði keypt verslunarrekstur Fjarðarkaupa. Samkaup reka í dag verslunarkeðjunar Nettó, SPAR, Prís, Heimkaup, 10-11, Kjörbúðina og Krambúðina.
Fara í 350 milljóna endurbætur
Hefur Kaldalón gert langtíma leigusamning við Samkaup um alla fasteignina, en Kaldalón skuldbindur sig til að leggja til 350 milljónir í endurbætur á fasteigninni.
Heildarvirði félagsins í viðskiptunum er 2,4 milljarðar. Að teknu tilliti til frádráttar vegna tekjuskattsskuldbindingar nemur virði fasteignarinnar um 2,2 milljörðum.
Viðskiptin eru háð fyrirvörum, meðal annars um að kaup Samkaupa á Fjarðarkaupum gangi eftir og hljóti samþykki Samkeppniseftirlitsins. Áætlað er að afhending og uppgjör fari fram undir lok árs 2026 eða á fyrsta ársfjórðung 2027.
Áætlað er að rekstrarhagnaður Kaldalóns aukist um 195 milljónir á ársgrundvelli og komi að mestu fram á seinni helmingi ársins 2027. Auk þess telur Kaldalón frekari tækifæri til þróunar á lóðinni til lengri tíma.
Skel stærsti hluthafi í bæði Dröngum og Kaldalóni
Stærsti hluthafi Dranga er Skel fjárfestingafélag hf. með 60,8% hlut. Stærsti eigandi Skeljar er Strengur hf. með 51,59% hlut. Stærstu eigendur Strengs eru RES 9 ehf og M25 Holding ehf.
Félagið RES 9 er að mestu í eigu Sigurðar Ásgeirs Bollasonar, en M25 Holding er í meirihlutaeigu Ingibjargar Pálmadóttur. Eiginmaður Ingibjargar, Jón Ásgeir Jónsson, er skráður stjórnarformaður og forráðamaður Strengs. Jón Ásgeir, ásamt föður sínum Jóhannesi Jónssyni stofnuðu Bónus á sínum tíma.
Skel er einnig stærsti eigandi í Kaldalóni með 13,34% hlut.
Heimild: Mbl.is
Efni: Kaldalón kaupir húsnæði Fjarðarkaupa











