Home Fréttir Í fréttum Jarðböðin á Mývatni opnuð eftir tímafrekar framkvæmdir

Jarðböðin á Mývatni opnuð eftir tímafrekar framkvæmdir

83
0
Jarðböðin á Mývatni opnuð eftir tímafrekar framkvæmdir
Jarðböðin eru nú 35% stærri en fyrir lokun RÚV – Kristófer Óli Birkisson

Jarðböðin á Mývatni opnuð eftir tímafrekar framkvæmdir

Jarðböðin á Mývatni voru opnuð á nýjan leik í gær eftir langa bið. Kostnaður við framkvæmdirnar nemur milljörðum og hellir sem fannst meðan á þeim stóð er enn í friðlýsingarferli.

Jarðböðin í Mývatnssveit voru opnuð í gær, nokkrum dögum á eftir áætlun. Framkvæmdir hafa staðið yfir í nokkur ár og hefur ýmislegt komið upp á, að sögn framkvæmdastjóra. Mikil ánægja er þó með hvernig framkvæmdirnar tókust til.

Jarðböðin hafa verið mikið aðdráttarafl í Mývatnssveit og var þeim mikið keppikefli að opna á meðan ferðamannastraumurinn er sem mestur. Þau eru langstærsti atvinnurekandinn á þessum slóðum með um 70 starfsmenn þegar mest lætur.

Í samtali við fréttastofu í upphafi júní sagði Guðmundur Birgisson framkvæmdastjóri að þeir stefndu á að opna 30. júní. Það tókst ekki alveg en 9. júlí varð að duga.

Jarðböðin lögðu mikið upp úr sjálfbærni í byggingarfasanum þar sem jarðvegur og grjót úr nágrenninu voru nýtt í þakkanta hússins og gufubaðið á staðnum er kynnt með jarðhitanum á staðnum.

Nýtt aðstöðuhús er þrefalt stærra en það gamla og lónið sjálft stækkar um 35% og er nú með pláss fyrir allt að 600 gesti í einu.

Mynd tekin í upphafi júní í Jarðböðunum
RÚV – Kristófer Óli Birkisson

Kostnaðurinn við nýframkvæmdirnar hleypur á milljörðum.

Gríðarstór hellir fannst í byggingarferlinu, tafði framkvæmdir töluvert og er í friðlýsingarferli. Hellirinn er rúmir 100 metrar að lengd og standa vonir til þess að hægt verði að sýna hluta hans þegar fram líða stundir.

Heimild: Ruv.is

Efni: Jarðböðin á Mývatni opnuð eftir tímafrekar framkvæmdir