Home Fréttir Í fréttum Húsnæðismarkaðurinn eins og villta vestrið

Húsnæðismarkaðurinn eins og villta vestrið

84
0
Húsnæðismarkaðurinn eins og villta vestrið
„Öll höfum við þörf fyrir þak yfir höfuðið og það sem meira er, samastað sem við getum kallað „heima”. Þar sem við finnum til öryggis og þess að vera á einhvern hátt komin í höfn á tilteknu æviskeiði,“ segir í tilkynningu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Húsnæðismarkaðurinn eins og villta vestrið

Óaðgengilegt húsnæði, lágar tekjur og mikill kostnaður vegna fötlunar eru meðal hindrana sem geta komið í veg fyrir að fatlaður einstaklingur geti fest kaup á húsnæði á frjálsum markaði.

Þá geta langir biðlistar eftir félagslegu húsnæði komið í veg fyrir aðgang að leiguhúsnæði, raunar eru dæmi um að einstaklingar hafi þurft að afþakka húsnæði þar sem nauðsynleg þjónusta fylgdi ekki með.

Þetta er meðal þess sem rætt var á málþingi ÖBÍ réttindasamtakanna um takmarkaða möguleika fatlaðs fólks á húsnæðismarkaði sem haldið var á Hilton Nordica Reykjavík í gær.

Þörfin fyrir þak yfir höfuðið

„Öll höfum við þörf fyrir þak yfir höfuðið og það sem meira er, samastað sem við getum kallað „heima”. Þar sem við finnum til öryggis og þess að vera á einhvern hátt komin í höfn á tilteknu æviskeiði,“ segir í tilkynningu um málþingið.

Íslenskum húsnæðismarkaði sé stundum líkt við villta vestrið þegar komi að verðhækkunum, lánakjörum og möguleikum fólks á leigumarkaði.

Á málþinginu deildu fatlaðir einstaklingar úr ólíkum áttum reynslu sinni af rýru húsnæðisframboði, ósveigjanlegu kerfi, aðgengishindrunum og skorti á stuðningi til viðeigandi aðlögunar. Þá fóru fram pallborðsumræður þar sem leitað var lausna við þeim áskorunum sem fatlað fólk stendur frammi fyrir.

Heimild: Mbl.is

Efni: Húsnæðismarkaðurinn eins og villta vestrið