Home Fréttir Í fréttum HMS áréttar kröfur um öryggisúttektir mannvirkja

HMS áréttar kröfur um öryggisúttektir mannvirkja

235
0
HMS áréttar kröfur um öryggisúttektir mannvirkja
Mynd: HMS.is

HMS áréttar kröfur um öryggisúttektir mannvirkja

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) áréttar að óheimilt sé að taka nýbyggingar og önnur mannvirki í notkun fyrr en öryggisúttekt hefur farið fram með jákvæðri niðurstöðu og tilskilið vottorð verið gefið út. Brot gegn ákvæðunum geta haft í för með sér lokun mannvirkja, sektir og önnur þvingunarúrræði.

Þetta kemur fram í tilkynningu HMS frá 15. október 2026 þar sem stofnunin fer yfir ábyrgð eigenda, byggingarstjóra og byggingarfulltrúa við öryggisúttektir mannvirkja.

Samkvæmt HMS er jákvæð öryggisúttekt og útgáfa vottorðs forsenda þess að heimilt sé að hefja notkun mannvirkis. Með úttektinni er staðfest að viðeigandi kröfur laga og reglugerða um öryggi og hollustuhætti séu uppfylltar.

Eigandi ber ábyrgð á lögboðnu eftirliti

Eigandi mannvirkis ber ábyrgð á því að lögboðið eftirlit með byggingu þess fari fram.

Það er þó að jafnaði byggingarstjóri sem óskar eftir öryggisúttekt fyrir hönd eigandans þegar mannvirkið er tilbúið til slíkrar úttektar.

Eigandi getur einnig óskað sjálfur eftir úttektinni. Sinni hvorki eigandi né byggingarstjóri þessari skyldu getur byggingarfulltrúi boðað til úttektar.

Byggingarfulltrúi framkvæmir öryggisúttektina og skulu bæði byggingarstjóri og fulltrúi slökkviliðs vera viðstaddir.

Þegar úttekt hefur farið fram með jákvæðri niðurstöðu gefur byggingarfulltrúi út skýrslu og öryggisúttektarvottorð. Gögnin eru jafnframt skráð í gagnagrunn HMS.

Heimilt að taka hluta byggingar í notkun

HMS bendir á að heimilt sé að taka afmarkaðan hluta mannvirkis í notkun áður en öllu mannvirkinu er lokið.

Skilyrðið er að viðkomandi hluti hafi staðist öryggisúttekt og að gefið hafi verið út vottorð sem tekur sérstaklega til hans.

Í vottorðinu þarf að koma skýrt fram hvaða hluti mannvirkisins hefur verið tekinn út og hver staða annarra hluta þess er.

Þetta getur meðal annars átt við um stærri byggingarframkvæmdir þar sem einstakir hlutar mannvirkja eru teknir í notkun í áföngum.

Öryggisúttekt og lokaúttekt ekki það sama

HMS leggur áherslu á að öryggisúttekt og lokaúttekt gegni ólíkum hlutverkum.

Öryggisúttekt er forsenda þess að hefja megi notkun mannvirkis með tilliti til brunavarna, öryggis, aðgengis og hollustuhátta.

Lokaúttekt felur hins vegar í sér endanlega staðfestingu á því að mannvirkið teljist fullgert og í samræmi við lög, reglugerðir og samþykkta hönnun.

Samkvæmt HMS skal lokaúttekt fara fram innan þriggja ára frá útgáfu öryggisúttektarvottorðs. Heimilt er þó að framkvæma báðar úttektirnar samtímis.

Byggingarfulltrúar hafa heimildir til að grípa inn í

HMS áréttar að notkun mannvirkis án tilskilins öryggisúttektarvottorðs brjóti gegn ákvæðum laga um mannvirki.

Í slíkum tilvikum beri byggingarfulltrúum sveitarfélaga að bregðast við.

Byggingarfulltrúar hafi yfir að ráða stjórnsýslu- og þvingunarúrræðum sem geti haft alvarlegar fjárhagslegar og réttarfarslegar afleiðingar fyrir eigendur mannvirkja.

HMS hvetur því eigendur og byggingarstjóra til að tryggja að lögboðnar úttektir fari fram og að tilskilin vottorð liggi fyrir áður en mannvirki eða hlutar þeirra eru teknir í notkun.

Heimild: HMS.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS : HMS: Gögn vantar fyrir um 80% brunahólfandi innihurða á markaði

Efni: HMS áréttar kröfur um öryggisúttektir mannvirkja