Hafnað að stöðva framkvæmdir í Þjórsárverum
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu Náttúrugriða um að stöðva tímabundið fyrirhugaðar framkvæmdir Landsvirkjunar í Þjórsárverum.
Framkvæmdirnar felast í að færa Austurkvísl Þjórsárkvísla aftur í fyrri farveg með um 600 metra langri rás og leiðigarði. Markmiðið er að veita vatninu í Þjórsárlón og auka þannig raforkuframleiðslu.
HMS komst að þeirri niðurstöðu í ágúst að framkvæmdin þyrfti ekki að fara í umhverfismat. Náttúrugrið kærðu ákvörðunina og vildu að framkvæmdir yrðu stöðvaðar á meðan kæran væri til meðferðar.
Úrskurðarnefndin hafnaði þeirri kröfu. Nefndin telur að að mestu hafi verið bætt úr annmörkum sem urðu til þess að hún felldi fyrri ákvörðun um sömu framkvæmd úr gildi í júní.
Landsvirkjun áætlar að framkvæmdirnar taki um tíu daga. Framkvæmdaleyfi hefur verið samþykkt en enn er beðið eftir afgreiðslu Náttúruverndarstofnunar á undanþágu frá friðlýsingu svæðisins.
Heimild: Mbl.is
Efni: Hafnað að stöðva framkvæmdir í Þjórsárverum












