Home Fréttir Í fréttum Hægir á sölu í stórum nýbyggingarverkefnum

Hægir á sölu í stórum nýbyggingarverkefnum

132
0
Hægir á sölu í stórum nýbyggingarverkefnum
Nýbyggingar rísa víða um höfuðborgarsvæðið en allur gangur er á hversu hratt gengur að selja íbúðir innan þeirra. Ljósmynd: Trausti Hafliðason

Hægir á sölu í stórum nýbyggingarverkefnum

Hægt hefur á sölu íbúða í nokkrum stórum nýbyggingarverkefnum á höfuðborgarsvæðinu. Þróunin er þó ólík eftir verkefnum og í sumum þeirra hefur salan aukist.

Ein íbúð seldist á Orkureitnum við Grensásveg frá apríl til september í ár, samanborið við átta á sömu mánuðum í fyrra. Þar eru enn 100 íbúðir óseldar. Á Heklureit seldist ein íbúð á þriðja ársfjórðungi, samanborið við fjórar á öðrum ársfjórðungi og þrjár á þriðja ársfjórðungi í fyrra.

Þetta kemur fram í greiningu Viðskiptablaðsins á sölu íbúða í nýbyggingarverkefnum á höfuðborgarsvæðinu. Talningin byggist á þinglýstum kaupsamningum í fasteignaskrá og miðast við 26. október. Samþykkt kauptilboð sem ekki hefur verið þinglýst eru því ekki talin með. Íbúðir sem seldar voru í magnkaupum en hafa síðan verið auglýstar til sölu á ný teljast einnig óseldar.

Því þarf að hafa í huga að sökum þessa er talningin í einhverjum tilfellum ekki í samræmi við sölutölur sem birtast á heimasíðum einstakra verkefna. Sem dæmi má nefna að samkvæmt þinglýstum kaupsamningum í fasteignaskrá eru 130 íbúðir óseldar á Heklureit en samkvæmt heimasíðu verkefnisins eru 72 íbúðir óseldar. Talningin gefur því ekki hárnákvæma mynd af fjölda óseldra íbúða á hverjum tíma en niðurstöðurnar gefa engu að síður vísbendingar um söluhraða.

Gögn upphaflegu greiningarinnar ná aftur til janúar 2024 og sýna því ekki endilega hvenær sala hófst í einstökum verkefnum. Þau staðfesta heldur ekki að óseldar íbúðir hafi verið auglýstar til sölu samfellt á samanburðartímabilinu. Nýjustu sölur geta bæst við með töf vegna þinglýsingar.

Ólík þróun eftir verkefnum

Þróunin er þó ólík eftir verkefnum. Í G1 við Grensásveg seldust jafnmargar íbúðir frá apríl til september bæði árin og í Vesturvin stóð salan í stað milli síðustu tveggja ársfjórðunga.

Greiningin nær til 57 nýbyggingarverkefna frá 1. janúar 2024 til 26. október 2026. Í verkefnunum eru alls 4.274 íbúðir og samkvæmt talningu þann 26. október voru 1.902 þeirra óseldar.

Heimild: Vb.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Bjóða kaupendum að eignast 75% í íbúðum

Efni: Hægir á sölu í stórum nýbyggingarverkefnum