
Gluggarnir verði sérsmíðaðir
Breytingar á Húsi málarans í Bankastræti 7a þurfa að fara í grenndarkynningu. Þetta er niðurstaða skipulagsfulltrúa Reykjavíkur en erindi vegna málsins var lagt fram á fundi skipulagsfulltrúa nýverið. Til stendur að rífa þriðju hæð hússins og endurbyggja hana.
Í umsögn skipulagsfulltrúa var meðal annars lögð fram ný umsögn Minjastofnunar Íslands þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar á húsinu. Minjastofnun mælir hins vegar með því að allir gluggar á nýrri 3. hæð verði úr timbri og sérsmíðaðir í samræmi við glugga 2. hæðar. Undir þetta tekur skipulagsfulltrúi.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Hús málarans verði hækkað
Efni: Gluggarnir verði sérsmíðaðir











