Gert að endurgreiða 48.5 milljónir
Hæstiréttur Íslands dæmdi í fyrradag að húsfélagið að Miðhrauni 4 í Garðabæ skyldi endurgreiða meðeiganda Heima hf., áður fasteignafélagsins Regins hf., 48,5 milljónir króna með dráttarvöxtum um árabil vegna tjóns í stórbrunanum 5. apríl 2018 þegar eldur kom upp í húsnæði fyrirtækjanna Icewear og Geymslna.is.
Snerist málið um kostnaðarskiptingu við endurbyggingu Miðhrauns 4 eftir brunann, forsvarsmenn Heima töldu að skipta ætti kostnaði eftir hlutfalli brunabóta, en Hæstiréttur dæmdi að miða ætti við eignaskiptasamning eins og meðeigandinn krafðist.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Geymslubruninn kærumál
Efni: Gert að endurgreiða 48,5 milljónir












