Garðabær býður út 600 fermetra búsetukjarna við Haustbraut
Garðabær hefur auglýst útboð á byggingu nýs 600 fermetra búsetukjarna við Haustbraut 2 í Hnoðraholti. Um er að ræða sjö íbúða kjarna fyrir fatlað fólk ásamt starfsmannaaðstöðu og á að afhenda húsið fullbúið.
Húsið verður einnar hæðar steinsteypt mannvirki sem klætt verður að utan með viðarklæðningu. Samkvæmt útboðsauglýsingu Garðabæjar fær verktaki lóðina afhenta afgirt og með tilbúnum jarðvegspúða undir sökkla. Útboðið er almennt opið útboð.
Búsetukjarninn verður með sjö íbúðum, sérinngangi í hverja íbúð og aðstöðu fyrir starfsfólk sem sinnir þjónustu við íbúa. Garðabær hefur áður lýst verkefninu sem lið í því að styðja við sjálfstæða búsetu og lífsgæði fatlaðs fólks í heimabyggð.
Tilboð opnuð í október
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem eru rafræn og verða aðgengileg á https://gardabaer.utbodsgatt.is/haustbraut-2-busetukjarni
Tilboðum skal skila rafrænt undir vefslóð útboðsins eigi síðar en 6. október kl 11:00.
Jarðvinnu þegar lokið með sérstöku útboði
Framkvæmdinni hefur verið skipt upp í áfanga. Fyrr á árinu bauð Garðabær sérstaklega út jarðvinnu og lagnir vegna búsetukjarnans.
Það verk fól meðal annars í sér uppgröft, fyllingar, fráveitulagnir og undirbúning lóðarinnar fyrir sjálfa húsbygginguna. Helstu magntölur voru um 2.300 rúmmetrar í uppúrtekt, 900 rúmmetrar í fyllingar og 60 metrar af fráveitulögnum.
Alls bárust 13 tilboð í jarðvinnuna. Karína ehf. átti lægsta tilboðið, 16,78 milljónir króna, sem var 57% af kostnaðaráætlun verkkaupa upp á 29,30 milljónir. Bæjarráð samþykkti að ganga að tilboði fyrirtækisins með fyrirvara um að skilmálar útboðsins væru uppfylltir.
Sérhannað fyrir hreyfihamlaða
Skipulagsforsendur fyrir lóðina gera ráð fyrir einnar hæðar búsetukjarna með sex til sjö íbúðum ásamt starfsmannaaðstöðu. Í skipulagsgögnum kemur jafnframt fram að húsið skuli sérstaklega hannað með þarfir hreyfihamlaðra í huga.
Bæjarráð Garðabæjar samþykkti fyrr í sumar útboðs- og verklýsingu fyrir sjálfa byggingu búsetukjarnans og fól umhverfissviði að annast útboðið fyrir hönd bæjarins.
Heimild: Garðabær
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 30.03.2026 Garðabær – Búsetukjarni, Haustbraut 2, jarðvinna og lagnir
Efni: Garðabær býður út 600 fermetra búsetukjarna við Haustbraut












