Home Fréttir Í fréttum Fyrsta alvöru keyrslan í stækkuðu löndunarhúsi Loðnuvinnslunnar

Fyrsta alvöru keyrslan í stækkuðu löndunarhúsi Loðnuvinnslunnar

20
0
Fyrsta alvöru keyrslan í stækkuðu löndunarhúsi Loðnuvinnslunnar
Unnið að lokafrágangi innanhúss í nýja löndunarhúsinu en tæknibúnaður allur kominn í gagnið og farinn að virka eins og skyldi. Mynd: Aðsend

Fyrsta alvöru keyrslan í stækkuðu löndunarhúsi Loðnuvinnslunnar

„Núna er þetta loks komið þannig að við getum landað bæði inn í bræðsluna og vinnsluna gegnum þetta nýja kerfi okkar og erum að taka á móti kolmunnafarmi til að láta á kerfið reyna fyrsta sinni fyrir alvöru,“ segir Baldur Marteinn Einarsson, útgerðarstjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði.

Stækkun og uppfærsla löndunarhúss Loðnuvinnslunnar hefur lengi verið í bígerð en samkvæmt nýjum vigtunarreglum sem gildi tóku um síðustu áramót er gerð krafa um heilvigtun alls uppsjávarfisks á leið inn í vinnslur. Ekki var pláss fyrir slíkan búnað í eldra löndunarhúsi fyrirtækisins svo hafist var handa við stækkun hússins síðasta haust.

Það verk gengið vel og þó enn séu nokkrar vikur áður en húsið verður að fullu klárað er það aðeins frágangur innandyra sem eftir er. Það kemur ekki í veg fyrir prufukeyrslur á nýja kerfinu enda agnúar þar sem sníða hefur þurft af að sögn Baldurs.

„Við höfum aðeins verið að prufulanda gegnum nýja húsið síðustu dagana en það mikil til verið svona blandaður afli og eitt og annað komið í ljós sem hefur þurft að breyta til að þetta yrði eins og við viljum. Nú er kerfið að virka eins og við sáum fyrir okkur og nú skal látið á það reyna með löndun gegnum húsið á kolmunnafarmi.“

Heimild: Austurfrétt.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Miklar framkvæmdir fram undan við stækkun löndunarhúss Loðnuvinnslunnar

Efni: Fyrsta alvöru keyrslan í stækkuðu löndunarhúsi Loðnuvinnslunnar