FSRE auglýsir eftir varðveisluhúsnæði fyrir Þjóðskjalasafn, Listasafn og Náttúruminjasafn Íslands
FSRE auglýsir eftir varðveisluhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu fyrir Þjóðskjalasafn Íslands, Listasafn Íslands og Náttúruminjasafn Íslands. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), fyrir hönd ríkissjóðs, óskar eftir leigutilboðum í húsnæði sem hentar til varðveislu skjala, safnmuna og annarra mikilvægra gagna.
Um er að ræða leiguverkefni sem nær til varðveislurýma og tengdrar starfsemi til 5–10 ára með möguleika á framlengingu.
Leitað að 1.500–2.500 fermetra húsnæði
Gerð er krafa um að húsnæðið sé á höfuðborgarsvæðinu og henti fyrir varðveislu gagna og safnmuna.
Þarfirnar ná meðal annars til:
- Varðveislurýma
- Móttöku bretta
- Flokkunar- og úrvinnslurýma
- Starfsmannaaðstöðu
- Innkeyrsluhurðar fyrir stóra sendibíla
Húsnæðisþörfin er á bilinu 1.500–2.500 fermetrar og er æskilegt að skjalageymslan sé að mestu í einu samfelldu rými.
Kröfur um afhendingu og staðsetningu
Húsnæðið skal vera fullbúið og tilbúið til notkunar sem fyrst og eigi síðar en þremur mánuðum eftir undirritun leigusamnings.
FSRE leggur áherslu á að byggingin sé ekki staðsett á svæðum þar sem hætta er talin vegna náttúruvár, svo sem:
- Jarðskjálfta
- Flóða
- Sprungusvæða
Reynsla leigusala metin
Leigusalar þurfa að sýna fram á reynslu af uppbyggingu og rekstri atvinnuhúsnæðis.
Með tilboðum skulu meðal annars fylgja upplýsingar um:
- Stærð og staðsetningu húsnæðis
- Leiguverð á fermetra
- Heildarleiguverð á mánuði
- Fjölda bílastæða
- Aðkomu að húsnæði
- Skipulag og deiliskipulag svæðisins
- Reynslu af fasteignarekstri
Mat á tilboðum
Við mat á tilboðum verður meðal annars horft til:
- Leiguverðs
- Stærðar og skipulags húsnæðis
- Öryggis
- Afhendingartíma
- Staðsetningar
- Aðkomu að húsnæðinu
FSRE áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum ef engin þeirra uppfylla þarfir verkefnisins.
Tilboðsfrestur til 19. júní
Tilboð skulu berast í útboðskerfi FSRE fyrir 19. júní 2026 kl. 13:00.
Allar nánari upplýsingar er að finna í útboðskerfi FSRE, TendSign.is.
Leiðbeiningar varðandi skráningu og skil tilboða er að finna á hér.
Beinn hlekkur á auglýsinguna ásamt gögnum í útboðskerfi












