Home Fréttir Í fréttum FSON ehf. fær samning um frágang gangstétta á Akureyri- Opnun útboðs

FSON ehf. fær samning um frágang gangstétta á Akureyri- Opnun útboðs

192
0

Opnun útboðs:

Tilboð voru opnuð hjá Umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar þann 6. maí 2026 vegna verksins „Frágangur gangstétta 2026–2027“.

Alls bárust fjögur tilboð í verkið og reyndist FSON ehf. vera með lægsta tilboðið, að fjárhæð 45,9 milljónir króna með virðisaukaskatti, sem jafngildir um 105% af kostnaðaráætlun verkkaupa.

Kostnaðaráætlun Akureyrarbæjar fyrir verkið hljóðaði upp á 43,8 milljónir króna með virðisaukaskatti.

Tilboðin voru eftirfarandi:

  • FSON ehf. – 45.907.000 kr.
  • Dalverk ehf. – 51.272.500 kr.
  • Geitur & Grófur ehf. – 54.548.500 kr.
  • EB ehf. – 57.995.000 kr.

Á fundi umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar þann 12. maí 2026 var samþykkt að ganga til samninga við lægstbjóðanda og sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs falið að ganga frá samningi við FSON ehf.

Verkið felur í sér frágang gangstétta á Akureyri á árunum 2026–2027 og er hluti af áframhaldandi uppbyggingu og viðhaldi innviða bæjarins.

Fylgiskjöl

Heimild: Akureyri.is