Framkvæmdum við fyrsta áfanga bílaplans við Baug Bjólfs að ljúka
Fyrsti áfangi byggingar bílaplans við útsýnispallinn Baug Bjólfs yfir Seyðisfirði er á lokametrunum en jafnframt hefur verið hafist handa við að moka gönguleið fólks frá frá bílaplaninu að pallinum en þar var mikill snjór eftir veturinn.
Upphaflega var hugmyndin að lokið yrði við gerð bílaplansins, sem stendur nokkuð neðan við Bauginn sjálfan, síðasta haust en þar sem veturinn gerði snemma vart við sig gekk það ekki upp.
Eins og staðan er nú aðeins fjórhjóldrifnum bílum fært að bílaplaninu en þar sem þar eru enn framkvæmdir eru bílastæðin fá og gönguleiðin nokkuð torfær.
Að þessum fyrsta áfanga loknum skal gera hlé á framkvæmdum meðan mesti gestafjöldinn er í júlí og ágúst en strax í kjölfarið er stefnt á að ljúka öllum frágangi og framkvæmdið við bílaplanið auk þess að lagfæra bæði gönguleiðina og veginn upp að Baugnum.
Heimild: Austurfrett.is












