Framkvæmdir víða í Húnaþingi vestra í sumar
Umfangsmiklar framkvæmdir standa nú yfir í Húnaþingi vestra og snerta þær bæði skóla-, íþrótta- og félagsaðstöðu auk gatnagerðar og innviðauppbyggingar. Markmiðið er að efla þjónustu, bæta aðstöðu og styrkja innviði sveitarfélagsins til framtíðar. Sagt er frá þessum framkvæmdum á vef Húnaþings vestra.
Þar kemur fram að unnið er að gagngerri endurgerð skólalóðar Grunnskólans á Hvammstanga þar sem leiktæki verða endurnýjuð nær alfarið. Settir verða upp nýir leiktækjakjarnar, þar á meðal stórt leikskip, trampólín og aparóla ásamt hefðbundnum rólum og sandkössum.
Öll undirlög verða uppfærð til að uppfylla öryggiskröfur og er gert ráð fyrir að leiksvæðið verði glæsilegt þegar framkvæmdum lýkur.
Í Kirkjuhvammi er unnið að nýju þaki á aðstöðuhúsi sem mun bæta verulega aðstæður til íþróttaiðkunar. Þá hefst á næstunni þakendurnýjun á Bjarnaborg við Reykjaskóla, sem er hluti af stærri endurbótum á húsnæði sem Ungmennafélag Íslands nýtir fyrir skólabúðir grunnskólabarna.
Endurbætur á Félagsheimilinu Hvammstanga halda áfram og hefur þak og ytra byrði hússins verið endurnýjað á undanförnum tveimur árum.
Nú er unnið að innra skipulagi og stendur hönnun í opnu íbúasamráði til 26. júlí. Haldið hefur verið íbúafundur og mun sveitarfélagið einnig funda með helstu notendahópum hússins áður en endanleg útfærsla verður ákveðin.
Framkvæmdir á hitaveitulögnum halda áfram og verður í sumar unnið við syðri hluta Hvammstangabrautar auk þess sem lokið verður við framkvæmdir á Höfðabraut, Brekkugötu og Lækjargötu.
Þá verður haldið áfram með endurnýjun malbiks á Hvammstanga og er von á vélum innan fárra daga til að ráðast í fyrsta áfanga ársins. Bílastæðið norðan við Íþróttamiðstöðina verður einnig malbikað.
Gangstétta- og stígagerð er á fullu og er meðal annars unnið að nýrri gangstétt frá Lindarvegi niður að Kirkjuvegi. Að hausti verður malbikaður stígur á milli hverfa á Laugarbakka. Fjöldi smærri verkefna er einnig í vinnslu hjá umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviði, sem stendur frammi fyrir nokkrum skipulagsbreytingum.
Ráðning umsjónarmanns eigna er í vinnslu og mun það nýja starf fela í sér umsjón, ástandsmat og viðhaldsáætlanir fyrir fasteignir sveitarfélagsins.
Af innviðaverkefnum má nefna að Míla er að ljúka ljósleiðaravæðingu á Hvammstanga og Rarik jarðstrengjavæðingu í Hrútafirði.
Í ágúst hefjast framkvæmdir við lagningu strengs frá Laugarbakka til Víðigerðis til að styrkja hleðsluinnviði. Vegagerðin vinnur nú að endurnýjun klæðingar á Hvammstangavegi frá þjóðvegi 1, verkefni sem tafðist í fyrra en er mikilvægt þar sem vegurinn hefur víða sigið.
Heimild: Huni.is
Efni: Framkvæmdir víða í Húnaþingi vestra í sumar












