Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við Dvergshöfða 4 komnar á fullt eftir nær 18 ára hlé

Framkvæmdir við Dvergshöfða 4 komnar á fullt eftir nær 18 ára hlé

218
0
Framkvæmdir við Dvergshöfða 4 komnar á fullt eftir nær 18 ára hlé
Skjáskot úr Youtube mynd Heima.

Framkvæmdir við Dvergshöfða 4 komnar á fullt eftir nær 18 ára hlé

Framkvæmdir við skrifstofubygginguna Dvergshöfða 4 í Reykjavík eru hafnar á ný eftir langt hlé. Byggingin, sem staðið hefur ólkáruð frá árinu 2008, verður nú fullgerð samkvæmt nýrri hönnun og nútímakröfum um sjálfbærni.

Verkefnið er unnið fyrir Heima, sem keyptu fasteignina árið 2022, en Klasi hefur tekið að sér sjá um að klára framkvæmdina.

Um 14.000 fermetra skrifstofubygging

Dvergshöfði 4 verður sjö hæða staðsteypt skrifstofubygging, alls um 14.000 fermetrar að stærð. Húsið verður með glerhjúp á öllum hliðum og inndreginni sjöundu hæð.

Byggingin verður reist samkvæmt BREEAM-vottunarstaðli fyrir nýbyggingar, með áherslu á sjálfbærni, orkunýtingu og vistvæna hönnun.

Framkvæmdir stöðvuðust í kjölfar bankahrunsins

Bygging hússins hófst fyrir um 16 árum, þegar bílakjallari og jarðhæð voru steypt upp samkvæmt aðaluppdráttum frá 15. desember 2006.

Framkvæmdir stöðvuðust hins vegar á haustmánuðum 2008, í kjölfar efnahagshrunsins, og byggingin hefur síðan staðið ókláruð.

Heimar efndu til alþjóðlegrar hönnunarsamkeppni

Eftir kaup Heima á fasteigninni árið 2022 var efnt til hönnunarsamkeppni um framtíð byggingarinnar.

Sigurvegari varð svissneska arkitektastofan Kunz und Mösch, sem hannaði nýtt útlit og skipulag hússins. Framkvæmdafyrirtækið Klasi sér nú um að ljúka verkinu.

Hluti af uppbyggingu Borgarhöfða

Dvergshöfði 4 stendur í Borgarhöfða, í aðeins 3–4 mínútna göngufjarlægð frá Krossamýrartorgi, sem verður miðpunktur nýs borgarhluta á Ártúnshöfða.

Borgarhöfði er eitt stærsta þróunarsvæði Reykjavíkur og samkvæmt áætlunum verða þar:

  • um 8.000 nýjar íbúðir,
  • allt að 20.000 íbúar,
  • umfangsmikil atvinnuuppbygging,
  • verslun og þjónusta,
  • þrír nýir grunnskólar,
  • hjúkrunarheimili,
  • og menningarhús.

Endurvakning Dvergshöfða 4 markar því mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Borgarhöfða og Ártúnshöfða, sem á næstu árum mun þróast í einn stærsta og fjölbreyttasta borgarhluta landsins.

Heimild: Klasi / Heimar

Efni: Framkvæmdir við Dvergshöfða 4 komnar á fullt eftir nær 18 ára hlé