Framkvæmdir hafnar fyrir arftaka turnsins
Framkvæmdir eru hafnar við gömlu höfuðstöðvar Landsvirkjunar eins og sjá má á suðurhlið hússins við Háaleitisbraut 68.
Nýr leigutaki mun brátt hreiðra um sig í turni hússins samkvæmt heimildum mbl.is.
Landsbyggð hf. keypti rýmið af Landsvirkjun í fyrra. Um er að ræða 4.555 fermetra fasteign sem nemur 56% af skráðri eign hússins. Kaupverðið var 1,2 milljarðar króna.
Forsvarsmenn Landsbyggðar vildu ekki tjá sig um stöðu mála þegar eftir því var leitað.
Heimild: Mbl.is
Efni: Framkvæmdir hafnar fyrir arftaka turnsins












