
Fordæma vinnubrögð umhverfis- og samgöngunefndar
Heimastjórn Seyðisfjarðar segir nýsamþykkta samgönguáætlun marka svik ríkisstjórnarinnar við Austfirðinga. Hunsuð sé áratugavinna sem kostað hafi ríki og sveitarstjórn rúman milljarð króna.
Í fundargerð heimastjórnar Seyðisfjarðar 18. júní segir: „Heimastjórn Seyðisfjarðar harmar þau svik sem raungerst hafa með nýsamþykktri samgönguáætlun Alþingis.“
Segir stjórnin að ekki hafi einungis verið farið á bak við gefin loforð stjórnvalda í aðdraganda sameiningar Múlaþings heldur hafi einu fullhönnuðu og rannsökuðu jarðgöngum landsins verið slaufað. Er þar átt við Fjarðarheiðargöng.
Áratuga undirbúningsvinna
Að baki jarðganganna liggi áratuga undirbúningsvinna, rannsóknir og hönnun sem kostað hafi ríki og sveitarfélag um milljarð króna.
Ný samgönguáætlun var samþykkt 12. júní þar sem Fljótagöng á Tröllaskaga voru sett í forgang, Austfirðingum til mikils ama. Kemur þar fram að Fjarðarheiðargöng verði tekin til frekari skoðunar.
Fjarðarheiðargöng öryggismál fyrir landið allt
„Fjarðarheiðargöng eru öryggismál fyrir landið allt auk þess að vera gátt Íslands til Evrópu. Þá eru göngin fyrsti áfangi í hringtengingu samgangna á Austurlandi til eflingar atvinnulífi og samfélagi,“ segir einnig í fundargerðinni.
Heimastjórn fordæmir enn fremur að meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar hafi lagt blessun sína yfir vinnubrögð ráðherra.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sætti mikilli gagnrýni eftir að í ljós kom að hann las ekki skýrslu um samanburð jarðganga sem hann vitnaði í við kynningu nýrrar samgönguáætlunar.
Undir lok fundargerðarinnar kemur fram að heimastjórn Seyðisfjarðar muni „vinna ötullega að því að koma Fjarðarheiðargöngum í útboð
Heimild: Mbl.is
Efni: Fordæma vinnubrögð umhverfis- og samgöngunefndar











