Flikkað upp á Villa Nova á Sauðárkróki
Eflaust gleður það margan Króksarann þessa dagana að sjá að eitt fallegasta hús bæjarins er loks að fá andlitslyftingu. Hér er að sjálfsögðu átt við Villa Nova, helstu prýði gamla bæjarins á Sauðárkróki.
Húsið er í eigu ríkisins en eftir því sem Feykir best veit er engin starfsemi í húsinu um þessar mundir. Má nánast segja að húsið hafi verið orðið svo dapurlegt á að lýta, skítugt og ljóslaust, að fólk forðaðist að horfa á það. En nú er allt að færast til betri vegar og um leið lifnar yfir gamla bænum.
Heimild: Feykir.is












