Home Fréttir Í fréttum Fjallabyggð hafnar tilboðum í knatthús í Ólafsfirði

Fjallabyggð hafnar tilboðum í knatthús í Ólafsfirði

167
0
Fjallabyggð hafnar tilboðum í knatthús í Ólafsfirði
Mynd: Fjallabyggd.is

Fjallabyggð hafnar tilboðum í knatthús í Ólafsfirði

Bæjarráð Fjallabyggðar hefur formlega hafnað þeim tveimur tilboðum sem bárust í framkvæmdir við fyrirhugað knatthús í Ólafsfirði. Ástæðan er sú að bæði tilboðin voru verulega yfir kostnaðaráætlun sveitarfélagsins.

Eins og áður hefur komið fram frestaði Fjallabyggð í júní síðastliðnum ákvörðun um næstu skref í verkefninu eftir að ljóst varð að tilboðin sem bárust í útboð framkvæmdarinnar voru mun hærri en gert hafði verið ráð fyrir.

Tilboð voru opnuð 5. júní. Kostnaðaráætlun sveitarfélagsins hljóðaði upp á 401,3 milljónir króna. Tilboð Atlas nam 649,8 milljónum króna en tilboð K16 hljóðaði upp á 1.049,6 milljónir króna.

Á fundi bæjarráðs 16. júlí var samþykkt að hafna báðum tilboðunum á þeim forsendum að þau væru verulega yfir kostnaðaráætlun.

Samtal við íþróttahreyfinguna

Þrátt fyrir að tilboðunum hafi verið hafnað leggur bæjarráð áherslu á að áfram verði unnið að því að bæta íþróttaaðstöðu í sveitarfélaginu.

Í fundargerð kemur fram að bæjarráð vilji að þegar í stað verði hafið samtal við íþróttahreyfinguna um framhaldið, með það að markmiði að fylgja eftir þeirri stefnumótun sem samþykkt hefur verið um bætta aðstöðu fyrir íþróttir í Fjallabyggð.

Heimild: Trolli.is