Home Fréttir Í fréttum Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans

Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans

22
0
Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans
Gert er ráð fyrir mikilli umferð.

Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans

Tvö verkefni hjá Vegagerðinni eru sérstaklega tilgreind vegna sólmyrkvans í ágúst nk. Á Örlygshafnarvegi um Hvallátur og á milli Hvalskers og Skápadals verður vegurinn endurnýjaður.

Sem dæmi um verkefni á höfuðborgarsvæðinu má nefna Ofanbyggðarveg og hringtorg við Urriðaholt. Unnið er að landfyllingum vegna Fossvogsbrúar en þar mun borgarlína aka yfir. Gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar klárast.

Mislæg vegamót rísa við Ölfusárbrú og farið verður í vegagerð til að efla menningartengda ferðaþjónustu. Framkvæmdaáætlun Vegagerðarinnar eru gerð ítarleg skil í Morgunblaðinu í dag.

Heimild: Mbl.is