Home Fréttir Í fréttum Fagtækni með lægsta tilboð í rafkerfi nýs meðferðarkjarna Landspítala

Fagtækni með lægsta tilboð í rafkerfi nýs meðferðarkjarna Landspítala

118
0
Fagtækni með lægsta tilboð í rafkerfi nýs meðferðarkjarna Landspítala
Mynd: NLSH.is

Fagtækni með lægsta tilboð í rafkerfi nýs meðferðarkjarna Landspítala

Tilboð hafa verið opnuð í útboði Nýs Landspítala ohf. vegna rafkerfa í meðferðarkjarna frá kjallara K2 upp á fjórðu hæð. Fagtækni hf., í samstarfi við Raftækni ehf. og Víkingbáta ehf., átti lægsta tilboðið.

Um er að ræða útboð nr. I4084, sem nær til framkvæmda við rafkerfi í meðferðarkjarna Nýs Landspítala. Verkið tekur til raflagna og tengdra kerfa frá kjallara K2 upp á fjórðu hæð mannvirkisins.

Kostnaðaráætlun verkefnisins nemur 6.685.516.348 kr. án virðisaukaskatts.

Eftirtalin tilboð bárust:

Bjóðandi Tilboð án vsk Hlutfall af kostnaðaráætlun
Fagtækni hf. (Raftækni ehf., Víkingbátar ehf.) 6.032.339.749 kr. 90,23%
Þelamörk ehf. (Raflausnir rafverktakar ehf., Proted ehf.) 6.226.723.327 kr. 93,14%
Rafmiðlun hf. 6.200.000.000 kr. 92,74%
Kælismiðjan FROST ehf. 6.491.373.074 kr. 97,10%
Rafholt ehf. 7.264.296.644 kr. 108,66%

Lægsta tilboðið kom frá Fagtækni hf., í samstarfi við Raftækni ehf. og Víkingbáta ehf., að fjárhæð 6,03 milljarðar króna án virðisaukaskatts. Tilboðið er um 653 milljónum króna undir kostnaðaráætlun, eða sem nemur 90,23% af áætluðum verkkostnaði.

Tilboðin verða nú yfirfarin með tilliti til hæfis bjóðenda og annarra skilmála útboðsins áður en ákvörðun verður tekin um samningsgerð.

Rafkerfi meðferðarkjarnans

Rafkerfi meðferðarkjarnans eru meðal stærstu tæknikerfa sem ráðist hefur verið í við uppbyggingu Nýs Landspítala og gegna lykilhlutverki í starfsemi framtíðarsjúkrahússins.

Heimild: NLSH.is