Fá leyfi til að byggja rándýran leikvang
Roma hefur fengið formlegt leyfi til að byggja nýjan 60 þúsund manna heimavöll í ítölsku höfuðborginni. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er um 1,4 milljarðar evra.
Völlurinn verður byggður í Pietralata, um tíu kílómetra frá Stadio Olimpico, þar sem Roma spilar heimaleiki sína í dag. Framkvæmdir eiga að hefjast snemma árs 2027 og stefnt er að því að völlurinn verði tilbúinn árið 2029.

Borgarstjórinn Roberto Gualtieri segir nýja völlinn verða stórt skref fyrir fótboltann í borginni og verkefnið muni einnig fela í sér mikla uppbyggingu á svæðinu. Meðal annars verður stór almenningsgarður byggður samhliða vellinum.
Vonast er til þess að nýi völlurinn verði einn af keppnisvöllum EM 2032, sem fer fram á Ítalíu og í Tyrklandi.
Roma mun áfram spila á Stadio Olimpico þar til framkvæmdum lýkur en félagið deilir vellinum með Lazio.
Heimild: DV.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Stuðningsmenn Barcelona þurfa að bíða lengur eftir nýja Nývanginum
Efni: Fá leyfi til að byggja rándýran leikvang












