Home Fréttir Í fréttum Endurbæta hengibrúna í Blöndudal

Endurbæta hengibrúna í Blöndudal

48
0
Blöndudal
Á verkstað í Blöndudal er heilmikið umstang. Stór krani er þarfaþing við framkvæmdirnar sem fuglar himins fylgjast vel með. mbl.is/Sigurður Bogi

„Þessar framkvæmdir í Blöndudal eru heilmikið föndur sem hefur tekið sinn tíma. Brúin er komin vel til ára sinna, þurfti því viðhald og í svona verkefnum er að mörgu að hyggja,“ segir Júlíus Róbertsson.

Hann er einn liðsmanna í brúarvinnuflokki Vegagerðarinnar sem síðustu mánuði hefur verið að störfum við brúna yfir Blöndu nærri Löngumýri í Austur-Húnavatnssýslu.

Þetta er stór hengibrú, smíðuð árið 1944, og eftir notkun í meira en 80 ár þurfti að gera ýmsar endurbætur. Farið var í steypuviðgerðir, bæði á stöplum og turnunum tveimur sem halda uppi vírivirkinu sem brúargólfið hvílir á. Einnig þurfti að dytta að handriðum og nefna mætti fleira.“

Heimild: Mbl.is